Hér eru nýjar spennandi staðreyndir um bláber. Heimsæktu heimasíðu NABC og kynntu þér vísindalega umfjöllun:   http://www.blueberry.org/health.htm

Sendu okkur tölvupóst ef þú vilt afrit af upprunalegum skýrslum á:     Email

Fresh Bláber

Vinnur gegn öldrum

Þetta gæti hljómað of vel að vera satt. USDA Næringarstofnun Tufts háskóla, Boston, Massachusetts hefur rannsakað áhrif öldrunar á heila og hreyfifærni hjá rottum, með ýmsum næringaraðferðum þar á meðal með bláberjum. Þó ótrúlegt megi virðast hafa rannsóknir sýnt að rottur sem fengu bláberja fæði hafa endurheimt hluta æskufjörs, svo sem aukið minni og.

betri hreyfifærni. Það eru gögn sem gefa til kynna að bláber geti haft jákvæð áhrif á öldutengda sjúkdóma, sem við öll finnum fyrir fyrr eða síðar. Næringarstofnunin vinnur nú að því greina þessi efni í bláberjum sem valda þessum jákvæðu áhrifum. Fljótlega eftir að þessar niðurstöður voru gerðar opinberar í Bandarísku sjónvarpi, urðum við varir við skyndilegan áhuga á bláberjum og afurðum sem innihalda bláber.

Bláberjamjólk gæti lækkað blóðþrýsting

Stærsta mjólkurbú Finnlands, Valio, setti á markað nýja bláberjamjólk. Samkvæmt því sem fyrirtækið "Evolus" segir, er þetta fyrsta matvaran sem hefur blóðþrýstings- lækkandi áhrif. Hún var viðfangsefni tveggja óháðra lyfleysustaðlaða tvíblindra rannsókna. Ein af þeim er rannsókn gerð af finnsku heilbrigðisstofnuninni. Við finnum fleiri og fleiri grunnrannsóknir og aukinn áhuga á bláberjum frá skandínavíu.

        Andoxunar hæfileiki, C vítamín, fenólar og anthoccyanin eftir ferska geymslu lítilla ávaxta

Rannsókn var gerð til að ákvarða áhrif geymslutíma og hitastigs á innihald anthocyanin, fenóla, c vítamíns og ORAC í jarðaberjum, hindberjum, og bláberjum. Andoxunarhæfileiki hjá bláberjum minnkar ekki eftir geymslu. Í rauninni, varð smávegis hækkun á anthocyanin styrk eftir geymslu í rannsókninni á bláberjum. Það er áhugavert að merkja að ORAC innihald bláberja er hærra en í hinum berjunum. Þetta er mjög mikilvægt, því nú trúum við á gagnsemi bláberja og bláberja afurða. Neytendur á Íslandi eiga að vera öruggir um gagnsemi bláberja, jafnvel eftir flug frá Norður Ameríku.

Bláber og sjón

Í áratugi við höfum heyrt frásagnir af því hvernig bláber bæta sjón. Flugmenn sprengiflugvéla hjá breska flughernum (RAF) í síðari heimsstyrjöldinni voru sagðir borða bláber til að bæta nætusjón þeirra. Rannsóknir í Ísrael og Austur Evrópu hafa staðfestið það að bláber bæta sjón. Nýleg rannsókn í Japan hefur sannað vísindalega gagnsemi bláberja til að minnka augnþreytu. Um allt Japan kaupa neytendur smáflöskur sem innihalda bláberjasafa til að nýta sér þessa gagnsemi bláberja. Asahi Shibun, leiðandi dagblað í Japan gaf úr ritstjórar skopteikningu til að hvetja til neyslu bláberja hjá skrifstofufólki. Japanska rannsóknin sýndi fram á að neysla bláberja minnkar augnþreytu og bætir slæma sjón. Flestir rannsakendurnir halda að efnið,anthocyanin í bláa lit bláberja sé ábyrgt fyrir þessu góð áhrifum á augu og sjón.

Bláberja flavonoíðar í stað víns ?

Rannsókn gerð af Wisconsin háskóla þar sem ProVex CV var notað -- fæðubótarefni sem inniheldur extrakt af vínþrúgukjarna, vínþrúguhýði, Ginko biloba, billberries og quercetin - sýndi fram á það að flavóníðar eru andoxunarefni, sem vinna gegn æðaskemmandi áhrifum sindurefna.

Ný rannsókn greinir efni sem kemur í veg fyrir þvagrásarsýkingu. Mælt hefur verið með neyslu blábersafa til að koma í veg fyrir þvagrásarsýkingu. Verkunin orsakast ekki af sýrumyndandi eiginleikum bláberja heldur sérstakrar efnasamsetningar sem hemur viðloðun Escherichia coli við þekjufrumur þvagrásar. Bláber virka sem eins konar teflon lag sem kemur í veg fyrir að bakteríur loði við þvagrásarvegginn.

         Upplýsingar um andoxunarhæfni bláberja birt í vísindatímariti.

Rannsóknargrein Dr. Ronald Priors með titilinn "Antioxidant Capacity as Influenced by total Phenolic and Anthocyanin Content, Maturity and Variety of Vaccinium Species" var gefin út í árgangi 46, númer 7 tímaritsins "Journal of Agricultural and Food Chemistry".

Verk hans gefa bláberjum mjög góð meðmæli, "almennt eru bláber ein af betri uppsprettu afoxandi jurtaefna, af þeim fersku ávöxtum og grænmeti sem við höfum rannsakað." (p. 2686) "Hinir fjölþættu fenólar sem eru í bláberjum hafa mögulega fjölþætta verkun sem er gagnleg heilsu manna sem á þessu stigi málsins er erfitt að skilja." (p.2692) "Dagleg neysla á1/2 bolla af bláberjum myndi auka ORAC inntöku um 1-3,2 mmól, háð þroska og fjölbreytileika berjanna. Inntaka ORAC frá bláberjum getur haft marktæk áhrif á dagleg heildarneyslu ORAC" (p. 2692)

http://pubs.acs.org/journals/jafcau/index.html

Neytanda hluti

Ísland hlýtur að hafa mestu neyslu bláberja í heimi miðað við íbúafjölda. þegar við heimsóttum Ísland sáum við neytendur í búðum kaupa 2-3 öskjur af ferskum bláberjum! Hér á eftir eru nokkur góð ráð um hvernig að nota og geyma bláber. Ferskleiki: Skoðaðu ytra duftlagið á bláberjum. Það bendir til ferskleika og er æskilegt að sé til staðar. Bláber frá Norður Ameríku eru flutt með hraði frá ökrunum til flugvéla Flugleiða og koma til Ísland á svipuðu tíma og flestir staðir í Ameríku fá sín ber · Geymdu bláber í ísskáp eftir kaup · Ekki þvo bláber fyrr en þú ert að fara nota þau · Bláber þola geymslu nokkuð vel, en notaðu þau eins fljótt og mögulegt er, annars er gott að frysta þau, ekki skola berin heldur settu þau á eldhúsbréf og settu í frysti, þannig endast þau í marga mánuði. · Stærð, bragð: mundu að bláber vaxa á ökrum, það er munur á milli ræktanna eins og hjá villtum bláberjum. Flest bláberin sem eru flutt til Íslands eru stór og safarík en þú munt einnig finna smærri og bragðmikil ber, fjölbreytileiki er krydd lífsins

Tími: þú getur séð bláber á Íslandi næstum þú allt árið eins og í Norður Ameríku. Í apríl byrjar uppskeran venjulega langt í suðri í Flórída. Uppskerustaðir fyrir norðan koma síðan til skjalanna og uppskerutíminn endar síðan í Bresku-Kólumbíu í Kanada í september, Sumir heildsalar flytja inn bláber frá suðurhveli jarðar þá mánuði sem berin eru ekki ræktuð í USA þannig að það er möguleiki að sjá fersk bláber í búðum 12 mánuði á ári Uppskriftir: NABC er með stóra gagnabanka með bláberjauppskriftum og hægt er að nálgast þær á.

http://www.blueberry.org/recepies.htm

Her eru tveir uppskriftabæklingar sem hægt er að nálgast á netinu: · Cultivate a Taste for the Blues (Þroskaðu bragðskyn fyrir bláber) · Healthful Treats Made with Blueberries.

Bláberja hugmyndir.

· Borða þau fersk.
· Setja á morgunverði s.s cheerios, skyr, súrmjólk, múslí.
· Út á jógúrt.
· Á kjöt og fisk.
· Í kökur og bökur.
Hafið samband við

Contact.

· US Highbush Blueberry Council.
· 865 Woodside.
· San Mateo, CA 94401 USA.
· (e-mail)
· http://www.blueberry.org

US Highbush Blueberry Council Icelandic.     © 2004.    E Mail